jæja, það er nú gaman að sjá að einhver lítur eftir mér :-) takk fyrir það kæra fólk!
Hér á bæ hefur nú verið ansi mikið annríki, ekki að það teljist nýtt þegar ég er annars vegar. Einhvernvegin tekst mér alltaf að vera á þönum út um allan bæ! En nú er próftörn búin og ég get litið upp úr bókum og áttað mig á því að það eru bara tvær vikur til jóla!
En fyrir þá sem ekki vita skellt ég mér í "smá" nám í haust. Ákvað að vekja gömlu heilasellurnar úr dvala og athuga hvort þær væru nokkuð endanlega sofnaðar.
Sem virðist ekki vera því í gærkveldi fékk ég einkunn úr 1 af þrem áföngunum, Markaðsfærði.
í Lok nóvember þegar öll verkefni voru búin og sýniprófið barst mér fékk ég þvílíkt panic að lá við taugaáfalli! mér fannst ég bara ekkert muna og ekkert geta. Eiður var því notaður í að skapa umræðu um námsefnið og í að spurja mig spjörunum úr. Árangurinn, lokaeinkuninn:
10
önnur 10 sem þessi kennari gefur í áfanganum í 10 ár!!
en að öðru, þrátt fyrir annríki við lærdóminn fórum við fjölskyldan í Mývatnssveit 1. des að kíkja á jólasveinana. Í Dimmuborgum var skemmtilegur ratleikur þar sem fjölskyldan átti að svara spurningum á leiðinni að jólasveininum. Þegar við svo komum nær sáum við glettinn jólasvein upp á hól veifandi eins og vitlaysing til okkar. Þar var á ferð Kjetkrókur, virkilega sniðugur og skemmtilegur jólasveinn (sjáum hvort ég geti skellt inn mynd á eftir) En þar sem mjög fámennt var á staðnum gaf hann sér góðan tíma í að spjalla við krakkana, hlægja og gera grín. Eftir Dimmuborgir lá leið að Sel þar sem við fengum okkur kaffi og köku því það var alveg svakalega kalt! við fórum einnig í jólahúsið þar við. Svo var keyrt um mývatnssveitina, þvílík fegurð!!!
Við komum við í Vogafjósi sem er það einkennilegasta fyrirbæri sem ég hef kynnst. En þetta er kaffihús, staðsett inni í fjósi! þar er einungis gler á milli dýranna og kaffihúsagestanna 
En þrælsniðug hugmynd! jæja, lokaáfanginn voru Jarðböðin, en þar hef ég ekki komið áður. Við fórum ofan í um hálf 5 held ég og það tók Agnesi nú alveg tíma að jafna sig. Henni fannst þetta frekar ógnvekjandi. Myrkur allt um kring, klettar og snjór. En við áttum þarna ákaflega notarlega fjölskyldustund í ró og næði frá öllu áreiti og annríki. um 6 leytið mættu svo 13 skrítnir kallar!! En það voru jólasveinarnir, þessi ekta íslensku sem fóru í sitt árlega jólabað í síðubuxum og ermalöngum ullarbolum. Þessir 13 skemmtu öllum viðstöddum með söng, húmor og fíflagangi. Gríðarleg skemmtun! Svo var haldið heim og náðum í tæka tíð til að horfa á Spaugstofuna og Laugardagslögin á plúsnum. En það er orðið að fjölskylduhefð 
Áföstudaginn flugum við Eiður svo suður en hann var að fara á fund og um kvöldið fórum við á árlegt jólahlaðborð Ferro Zink. Georg Michael showið var í ár, en þar voru Jogvan og Friðrik Ómar bara flottir!! reyndar fannst mér dansararnir stela senunni, en dansarnir voru frábæriri!!
Maturinn var góður og gaman var að hitta þennan hóp aftur!
Nú sit ég hérna á sunnudagsmorgni sem byrjaði um 8 leytið þegar ég trítlaði ein niður á neðri hæðina og kíkti í bók í ró og næði. Og að þessu sinni, spennusaga ekki námsbók hehe
nú eru grísirnir 2 + einn auka komin niður og vilja fá sinn morgunmat!
En ég allavegana afrekaði það að skella hér inn færslu!
Hafið það sem allra best á aðventunni
KV Erla Ösp