Örlí görlí blöggörí........

Hellllú kæru gestir- Brostu!!! það er fallegur dagur í dag

09.09.2007 19:33:10 / erlaosp

Í lok helgar

Sunnudagskvöldið komið,  ég sit hér í sófanum. Börnin við eldhúsborðið að læra og lita. þetta er afskaplega notaleg stemning :)
Viðburðarík helgi og vika liðin en margt var gert. Ég var nú alveg megadugleg í hreyfingu þessa viku, ræktin, göngutúrar og fótboltaæfing.  fjarnámið að skríða af stað, samt bara búin að fá bréf frá einum kennara af þrem. Furða mig nú á því að ekki sé búið að starta hinum 2 fögnunum..... 3 vikur síðast dagskólinn byrjaði og ef við í fjarnáminu eigum að taka sama efni finnst mér þetta nú heldur mikið af okkur vegið..... en þetta hlýtur að koma í byrjun vikunnar.

Annars mætti ég í brunch á Bautanum með saumó á laugardagsm. þaðan að græja fyrir matarboð sem við vorum með, mætti í barnaafmæli um 4 og mætt aftur heim um hálf 6. Át eins og svín!! ég get svarið það!  En maturinn var ljúfur! B. Jensen stendur nú alveg fyrir sýnu!
Skruppum svo í Lystigarðinn í morgun til að taka myndir af börnunu, fyrir striga sem ég ætla að hengja af börnunum 3 í stigapallinum. Held ég hafi náð ca 2 af hvoru barni sem koma til greina af þessum 180 myndum sem ég tók hehehe
Í Lystigarðinum var svo allt í einu allt morandi af túristum, en við vöktum heilmikla lukku, en tvenn hjón vildu endilega taka myndir af okkru hehe.  Önnur hjónin voru frá Japan kölluðu Andra Maradona :D  Þau voru svo yndisleg að gefa börnunum pappírsfugl og körfu með nammi í! svakalega krúttlegt hehe :)

Við skelltum okkur svo í bíó í dag. Ratatouille, bara alveg ágætis ræma fyrir börnin.  Erum svo bara búin að vera að chilla eftir það.

svo er bara bissy vika framundan!

Linda skrifaði
kvitti kvitt dúlla verðum í bandi hafðu það sem best ég veit númerið þitt ;) Var að spá hvort þú gætir kíkt við tækifæri og farið með mér í tölvuna mína í svona smá kennslu :) Kv. Linda
Ólöf skrifaði
Blessuð gelz Djöfulli ertu dugleg að blogga kona! Miklu miklu duglegri en ég í því :) Hvað ert þú að læra í skólanum ? ... Ég sé ekki hvenær í ósköpunum við gætum hisst miðað við hvað þú ert busy kona:) En hafðu það gott og bjallaðu á mig ef það er opin eh smá kvöldstund fyrir spjall og sötr:) kveðja Ólöf sem ætlar að blogga í kvöld :)!!!
Ólöf skrifaði
Ekki lengi að bæta úr blogginu hjá mér! ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

�?AÐ ERU
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 989 dögum
Dagsetning
21. mars 2010
Börnin mín